Um skjaladaginn
Opinber skjalasöfn á Norðurlöndum hafa lengi kynnt starfsemi sína með ýmsu móti. Árið 2001 sameinuðust þau um árlegan kynningardag, annan laugardag í nóvember.
Upphaflega var ákveðið var að annað hvert ár skyldi dagurinn helgaður sameiginlegu norrænu þema. Þess á milli áttu söfnin að hafa frjálsar hendur um val á þema. Árið 2006 var ákveðið að hafa sameiginlegt þema þriðja hvert ár og skyldi þemað ákveðið og kynnt á norrænum skjaladögum árið áður. Það fyrirkomulag hefur haldist að mestu leyti síðan.
Mörg skjalasöfn opna hús sín fyrir almenningi á þessum degi og vekja athygli á tilteknum skjalaflokkum, oft með því að setja upp sýningar á völdum skjölum sem tengjast þema dagsins hverju sinni. Önnur setja upp sýningar sem tengjast skjaladeginum með einhverjum hætti, en standa uppi í lengri tíma. Óhætt er að fullyrða að eitthvað sé á döfinni hjá flestum skjalasöfnunum um þetta leyti ársins.
Þjóðskjalasafn Íslands og héraðsskjalasöfnin standa sameiginlega að gerð þessa vefs til að kynna norræna skjaladaginn.
Yfirskrift skjaladagsins árið 2017 er „Hús og heimili“. Fjallað er um skjöl og skjalaflokka sem tengjast húsum, húsagerð, híbýlum, heimilishaldi og innanstokksmunum í víðum skilningi. Finna má ýmis dæmi um heimildir sem tengjast þema dagsins með einhverjum hætti á þessum vef. Hægt er að lesa nánar um þemað í leiðara skjaladagsins og kanna hvað er á dagskrá hjá þeim skjalasöfnum sem hafa opið á skjaladeginum 11. nóvember 2017.
Þótt lög gildi um opinbera skjalavörslu, er ekki nægilega áréttað að einstaklingar í félögum, stofnunum og fyrirtækjum ráða miklu um hvað verður um gögn sem þeir vinna með eða varðveita. Eitt markmiða skjaladagsins er að efla vitund fólks um að skjalasöfnin séu tryggir vörslustaðir skjala af hvaða tagi sem er. Fundargerðabækur, bréf, myndir og fleiri skjöl af ýmsu tagi eiga erindi á skjalasöfn. Því er fólk hvatt til að hafa samband við næsta héraðsskjalasafn, eða Þjóðskjalasafn, ef það hefur undir höndum skjöl sem það veit ekki hvað gera á við, eða vill koma í örugga vörslu.
SKJALADAGSNEFND
- Benedikt Eyþórsson, Þjóðskjalasafni Íslands
- Benedikt Jónsson, Þjóðskjalasafni Íslands
- Unnar Ingvarsson, Þjóðskjalasafni Íslands
- Svanhildur Bogadóttir, Borgarskjalasafni Reykjavíkur
- Snorri Guðjón Sigurðsson, Héraðsskjalasafni Þingeyinga
Vefstjóri: Benedikt Jónsson