Lágafellshúsið. Engin kennileiti úr sveitinni er að sjá, það hefði þá kannski helst verið hlaðan á Blikastöðum sem sést á myndinni en hún var byggð árið 1920. Því er möguleiki á því að myndin sé frá fyrsta áratug 20. aldar. Myndin er tekin úr turni kirkjunnar. Líklega má ætla að sr. Magnús Þorsteinsson sé presturinn sem sést ganga frá húsinu, en hann var prestur í Lágafellssókn á árunum 1904-1922.
Lágafellskirkja var byggð árið 1888 og vígð árið eftir 1889. Talið er að prestbústaðurinn að Lágafelli hafi verið byggður árið 1884.
Í Sögu Kjalarnesprófastsdæmis segir að presturinn sr. Jóhann Þorkelsson hafi flutt að Lágafelli árið 1885 og búið í eigin húsi og sama hafi gengt um eftirmann hans, sr. Ólafs Stephensen sem þjónaði Mosfellingum á árunum 1890-1904. Árið 1898 gerði sr. Ólafur samning við Lestarfélag Lágafellssóknar um viðbyggingu við hús sitt. Viðbyggingin var fest við húsið með langri járnslá sem lá þvert í gegnum það.
Árið 1909 keypti Mosfellshreppur hluta Lestrarfélagsins og var það kallað Þinghúsið eftir það. Kirkjan og þinghúsið voru einu samkomustaðir sveitarinnar. Á árunum 1898-1922 fór öll félagsstarfsemi Mosfellinga fram í Þinghúsinu eða þangað til húsið að Brúarlandi var tekið í notkun árið 1922. Hreppsnefndin fundaði í húsinu, Búnaðarfélag Mosfellshrepps átti afdrep í húsinu og í sögu bókasafnsins segir að íþróttamannslegir drengir hafi notað slána til ýmissa æfinga um leið og þeir sóttu sér lesningu á bókasafnið.
Húsið var flutt árið 1968 á þann stað þar sem það stendur nú. Er það var flutt gerði Pétur Hjálmsson uppdrátt sem sýnir staðsetningu hússins. Einn íbúi býr í hluta hússins sem er í hans eigu. Hinn hluta hússins á Mosfellsbær. Ástand hússins er lélegt og þarfnast mikillar viðgerðar. Lágafellshúsið er aldursfriðað skv. Minjastofnun Íslands.
Heimildir
- Magnús Guðmundsson: Bókasafn í 100 ár. Saga Lestrarfélags Lágafellssóknar og Héraðsbókasafns Kjósarsýslu 1890-1990, Héraðsbókasafn Kjósarsýslu 1990.
- Jón Þ. Þór: Saga Kjalarnesprófastsdæmis, Kjalarnesprófastsdæmi 2000.
Þetta efni er frá Héraðsskjalasafni Mosfellsbæjar.